Hér að neðan sést dæmi um spá um hvernig brennisteinsdíoxíð (í lit) og aska (svört korn og stjörnur) myndu dreifast miðað við veðurspár Belgings og ákveðnar forsendur um hæð gosmakkar, magn og kornastærðardreifingu gosefna. Sjáið nánar grein Umhverfisstofnunar um loftmengun í eldgosum en SO₂ kvarðinn í kortinu að neðan tekur mið af henni.

Því miður höfum við ekki tök á að halda þessari þjónustu úti lengur.

Spá um dreifingu gosefna

Við útreikningana var stuðst við besta tiltæka mat á magni SO₂ og ösku sem eldarnir gáfu frá sér. Spáin var svo endurgerð á um tveggja klukkustunda fresti miðað við veðurgögn úr nýjustu Rapid Refresh spánni frá NOAA sem innlag í WRF-Chem líkan keyrt í 400m upplausn á reikniþjörkum Belgings.

Allar athugasemdir sendist vinsamlegast á belgingur@belgingur.is